09.12.1957
Neðri deild: 35. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 27 í B-deild Alþingistíðinda. (59)
62. mál, fyrningarafskriftir
Frsm. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Um þetta mál þarf ekki mörgum orðum að fara. Það er komið frá Ed. og er framlenging á gildandi lögum um sérstakar fyrningarafskriftir, sem staðið hafa, eins og fram kemur í 1. gr., frá 1946. Fjhn. d. er sammála um að leggja til, að þetta frv. verði samþykkt óbreytt.