10.03.1958
Efri deild: 64. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 739 í B-deild Alþingistíðinda. (642)

148. mál, ríkisreikningar

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Þetta frv. er samið í sama formi og áður er venja um slík. Ég sé ekki ástæðu til að flytja framsöguræðu um málið, en óska eftir því, að því verði vísað til hv. fjhn. d. að lokinni þessari 1. umr.