18.03.1958
Efri deild: 69. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 740 í B-deild Alþingistíðinda. (648)
148. mál, ríkisreikningar
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Herra forseti. Fjhn. hefur athugað þetta frv. á tveimur fundum og borið það saman við ríkisreikninginn fyrir árið 1955. Það kom þegar í ljós, þegar n. fór að gera samanburð á frv. og ríkisreikningnum, að nokkrum tölum bar ekki saman. Var þetta athugað nánar, mér að nokkru leyti falið að gera leiðréttingar á þessu í samráði við starfsmann úr fjmrn., og auk þess bað ég svo skrifstofu Alþingis að lesa tölurnar með mér, bera þær saman, eftir að samvinnu við starfsmanninn var lokið. Vona ég, að þær breytingar, sem n. leggur til að gerðar verði á frv., séu nú réttar, því að vitanlega er ríkisreikningurinn sjálfur réttur, eða a.m.k. engin tök á að sjá annað. Hann er endurskoðaður, eins og venja er til, af yfirskoðunarmönnum ríkisreikningsins, og hafa þeir ekki gert tölulegar athugasemdir við niðurstöðurnar.
Hins vegar hafa yfirskoðunarmenn ríkisreikninganna að vanda gert nokkrar aths. út af ýmsu, sem reikninginn varðar. Þeim aths. hefur fjmrh. svarað að forminu til og yfirskoðunarmenn gert sínar tillögur að fengnum svörum ráðherra. Tillögur þeirra eru ýmist um það, að við svo búið megi standa, við svo búið verði að standa eða aths. sé til eftirbreytni framvegis o.s.frv., en engum af aths. vísa yfirskoðunarmennirnir nú til aðgerða Alþ., eins og þó hefur oft verið venja, að þeir hafa gert. Og það skal tekið fram að, að þessu sinni eru aths. óvenjulega fáar, sem þeir gera. Ég sé því ekki ástæðu til að ræða að öðru leyti um ríkisreikninginn frekar, þar sem engri aths. er vísað til aðgerða Alþingis, en venja hefur verið að ræða sérstaklega um þær athugasemdir, sem þá meðferð hljóta.
Þær leiðréttingar, sem n. gerir á frv. til samræmis við rekstrarreikning ríkisins, skipta ekki miklum fjárhæðum, en samtals verða þær þó til að lækka greiðslujöfnuðinn úr kr. 79.371.372.60 í kr. 71.826.670.24, og er þá munurinn samtals kr. 7.544.702.36.
Ég sé ekki ástæðu til að rekja hér, hvaða breytingar þetta eru að öðru leyti, sem n. leggur til að gera á frv. Það geta menn séð með samanburði við rekstrarreikning, enda eru þetta aðeins leiðréttingar.