25.04.1958
Neðri deild: 83. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 957 í B-deild Alþingistíðinda. (926)

93. mál, kostnaður við rekstur ríkisins

Forseti (EOl):

Frsm. minni hl. hefur flutt ræðu og flutt brtt., og það mun verða orðið við því að fresta atkvgr., en ég vildi nú ljúka umr. Hins vegar verður tekið fyrir næst annað mál, um eftirlit með eyðslu hjá ríkinu, sem er líka mál, sem þetta snertir, og þá gæfist líka tækifæri til þess að ræða meira um þetta mál, ef menn vildu. Það hefur þá enginn kvatt sér hljóðs, og er umr. lokið. Atkvgr. verður frestað.