06.03.1959
Neðri deild: 87. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1186 í B-deild Alþingistíðinda. (1022)

101. mál, selja jörðina Bjarnastaði í Unadal

Frsm. (Jón Sigurðsson):

Herra forseti. Landbn. hefur athugað þetta frv. og leitað um það álits og tillagna bæði forstjóra jarðeignadeildar ríkisins og landnámsstjóra, sem báðir mæla með frv. Landbn. hefur því að þessari athugun lokinni orðið ásátt um að leggja til við Alþingi, að það samþykki frv. óbreytt. Ég sé ekki ástæðu til að ræða frekar um frv., því að við 1. umr. málsins gerði fyrri flm. þess svo rækilega grein fyrir því, að ég sé ekki ástæðu til að endurtaka það, óska aðeins eftir, að málinu verði vísað til 3. umr.