11.12.1958
Efri deild: 36. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1223 í B-deild Alþingistíðinda. (1134)

65. mál, virkjun Sogsins

Forseti (BSt):

1. umr. um málið var lokið, og veitti ég ekki þm. orðið til þess, að hann gæti talað efnislega um málið, því að það er tækifæri til þess bæði við 2. umr. og 3. umr. að gera það. En það er þá till. um að vísa málinu til fjhn., sem ber málið fram, og verður hún borin upp.