15.12.1958
Efri deild: 38. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1228 í B-deild Alþingistíðinda. (1140)

65. mál, virkjun Sogsins

Forseti (BSt):

Mér hafa borizt eindregin tilmæli frá Sjálfstfl. um að halda ekki fundi lengur áfram vegna flokksfundar, sem flokkurinn ætlar að halda. Eins og á stendur og allir vita, þykir mér rétt að verða við þessum tilmælum. Er því umr. frestað og málið tekið út af dagskrá.