24.04.1959
Neðri deild: 115. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1307 í B-deild Alþingistíðinda. (1180)

144. mál, stjórnarskipunarlög

Forseti (EOl):

Mér hefur borizt ósk frá formanni þingflokks Framsfl., sökum þess að frsm. minni hl. stjórnarskrárnefndar er enn þá veikur, um að fresta þessu máli. Því miður get ég ekki orðið við því, sökum þess að málinu hefur þegar verið frestað einu sinni. Ég vil leyfa mér að vona, að hv. frsm. minni hl. geti hins vegar mætt, þegar til 3. umr. kemur, en annar fulltrúi Framsfl. í n. er nú hins vegar mættur.