11.05.1959
Efri deild: 116. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1724 í B-deild Alþingistíðinda. (1306)
135. mál, ítala
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Þeir, sem hafa samið þetta frv., virðast ekki hafa munað eftir því í svipinn, að til væru kaupstaðir á Íslandi, því að frv. miðar eingöngu við sýslur og sýslunefndir, en ekki kaupstaði, að öðru leyti en því, að á einum stað í frv., ég held í 7. gr., er minnzt á kaupstað.
Það verður að teljast mjög hæpið, eins og frv. er úr garði gert, að bæjarstjórnir hafi heimildir til að gera samþykktir um ítölu, en a.m.k. í ýmsum þeirra er full þörf á því, ekki síður en í sýslum. En ég hef bent hv. frsm. landbn. á þetta, og hann hefur viðurkennt þennan ágalla á frv., en talið, að ekki þyrfti að bæta úr því vegna þess, hve mjög þyrfti þá að breyta því.
Ég hef ekki borið fram brtt. um það, þar sem frsm. telur töluverðan vanda á höndum, en vil benda á þetta og vænti þess, að við þá endurskoðun laganna, sem gert er ráð fyrir í frv., hafi menn þetta í huga, að það séu líka til kaupstaðir á Íslandi.