11.05.1959
Efri deild: 116. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 59 í C-deild Alþingistíðinda. (1421)
86. mál, kirkjugarðar
Frsm. (Sigurvin Einarsson):
Herra forseti. Frv. þetta um kirkjugarða á þskj. 179 er búið að liggja alllengi hjá menntmn. N. ræddi það á nokkrum fundum sínum og komst að þeirri niðurstöðu, að hún gæti ekki mælt með samþykkt frv., eins og það liggur fyrir. Hún taldi, að það þyrfti allverulegar breyt. að gera á frv., til þess að hún gæti mælt með því, og jafnvel að endursemja það að vissu leyti. Þetta er mjög viðkvæmt mál og það snertir alla landsmenn, en hins vegar hefur þetta mál aldrei verið lagt fyrir söfnuðina í landinu, svo að engin vitneskja liggur fyrir um það, hvernig almenningur lítur á þær breyt., sem felast í þessu frv. frá gildandi lögum.
N. telur, að það sé meira um vert, að þetta mál sé afgr. í sem beztu samræmi við skoðanir almennings, en hitt, hvort það er afgr. árinu fyrr eða seinna.
Það er af þessum ástæðum, sem n. leggur til, að málið verði afgr. með rökstuddri dagskrá, svo hljóðandi:
„Í trausti þess, að kirkjumálastjórnin leiti umsagnar safnaðanna í landinu um frv. þetta og leggi málið síðan fyrir næsta þing, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá“
Það er síður en svo, að menntmn. vilji hindra á neinn hátt endurskoðun þessara laga um kirkjugarða, heldur vill hún reyna að tryggja það, að sú endurskoðun verði í sem mestu samræmi við vilja fólksins og að ekki verði rasað að því að gera samþykktir í þessu máli, sem er svona viðkvæmt, er kynnu að brjóta í bága við það, sem fólkið í landinu óskar helzt eftir að lögfest verði í þessum efnum.
N. er því einhuga um að leggja til, að málið verði afgr. með þessari rökstuddu dagskrá, sem ég las og er á þskj. 465.