18.12.1958
Neðri deild: 43. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 59 í B-deild Alþingistíðinda. (150)

52. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Frsm. ( Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Það er efni þessa frv. að framlengja fyrir næsta ár þau ákvæði um söluskatt, sem gilda fyrir árið, sem nú er að líða. Frv. er nákvæmlega shlj. þeim l., sem sett voru seint á árinu 1957 og gilda fyrir þetta ár.

Eins og fram kemur í nál. á þskj. 134, eru fjhn.-menn sammála um að mæla með því, að d. samþykki frv.