20.02.1959
Sameinað þing: 28. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í D-deild Alþingistíðinda. (1911)

29. mál, skipulagning hagrannsókna

Ólafur Björnsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins leyfa mér að þakka hv. allshn. og frsm. hennar fyrir jákvæða afstöðu, sem hún hefur tekið til þessarar till., sem ég flutti hér. Hjá hv. frsm. n. kom fram réttur skilningur á því, hvað það var, sem fyrir mér vakti með flutningi till., svo að ég sé ekki ástæðu til þess að bæta neinu við það, sem ég sagði á sínum tíma, þegar ég flutti framsöguræðu fyrir tillögunni.