11.05.1959
Sameinað þing: 47. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 289 í D-deild Alþingistíðinda. (2224)
169. mál, framkvæmdir í raforkumálum
Ásgeir Bjarnason:
Herra forseti. Þar sem raforkumálin eru mjög á dagskrá nú, þá vil ég ekki láta hjá líða að koma fram með eina örlitla fyrirspurn til hæstv. raforkumálaráðherra. Vegna þess að mér er nokkuð kunnugt um, hvaða till. raforkuráð hefur gert um framkvæmdir í raforkumálum á þessu ári, vil ég spyrja hæstv. ráðh. þess, hvað hann sé búinn að samþykkja sem ráðh. mikið af þeim tillögum eða hvort hann sé búinn að samþykkja þær allar. Og það, sem mér leikur sérstaklega hugur á að fá vitneskju um, er, hvort búið sé að samþykkja till. raforkuráðs um framkvæmdir í raforkumálum í Dalasýslu. Ég ætlast ekki til, að hæstv. ráðh. svari þessu nú, en hins vegar, ef þetta mál fer til nefndar, þá verði svarið birt um leið og þær umr. fara fram.