04.03.1959
Sameinað þing: 31. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 347 í D-deild Alþingistíðinda. (2297)
121. mál, innflutningur véla og verkfæra
Bjarni Benediktsson:
Herra forseti. Það var út af ummælum 2. þm. S-M., sem hélt því fram, að í tíð fyrrv. hæstv. ríkisstj., þeirrar sem síðast sat, hefði verið flutt inn minna af hátollavörum en áður. Það er með hátollavörur eins og annan innflutning, að allt verður að miðast við þann gjaldeyri, sem hverju sinni er fyrir hendi, og það er vitað mál, að eftir að síðasta hæstv. ríkisstj. tók við völdum, brá svo við, hvort tveggja, að tekinn var upp hallarekstur á ríkissjóði sjálfum og gjaldeyrisaðstaða landsins varð svo miklu lélegri, en nokkru sinni áður, að ríkisskuldir hafa á jafnstuttum tíma aldrei vaxið neitt í líkingu við það, sem á þessum tíma varð. Augljóst er og þarf ekki skýringa við, að þeir, sem þannig héldu á, höfðu raunverulega ekki efni á að eyða jafnmiklu fé í ýmiss konar innflutning og hinir, sem öllu gátu haldið á réttum kili.