22.12.1958
Neðri deild: 46. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1976 í B-deild Alþingistíðinda. (2443)

Þinghé - árnaðaróskir

Bjarni Benediktsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd dm. þakka hæstv. forseta fyrir hans hlýju óskir í garð okkar þm. og annarra samstarfsmanna okkar við þessa stofnun. Ég vil af hálfu þm. þakka hæstv. forseta fyrir ánægjulegt samstarf, það sem af er á þessu þingi, skörulega, réttláta og snurðulausa fundarstjórn, og ég vil óska honum og fjölskyldu hans allra heilla og biðja þeim blessunar.

Ég bið þm. um að staðfesta þessi orð mín með því að standa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]