20.03.1959
Neðri deild: 99. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1978 í B-deild Alþingistíðinda. (2457)

Þinghé - árnaðaróskir

Bjarni Benediktsson:

Herra forseti. Hvort sem þetta verður síðasti fundur d. fyrir páska eða ekki, þá veit ég, að ég mæli í nafni allra dm., þegar ég þakka hæstv. forseta hans árnaðaróskir í okkar garð. Ég vil þakka honum ágæta stjórn þessarar d. nú í vetur og óska honum og hans fjölskyldu allra heilla og gleðilegrar hátíðar — bið dm. um að standa upp því til staðfestu. — [Dm. risu úr sætum.]