12.05.1959
Efri deild: 120. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1980 í B-deild Alþingistíðinda. (2465)

Starfslok deilda

Forseti (BSt):

Ég þakka hv. þm. Vestm. hlý orð og góðar óskir í minn garð og hv. þdm. fyrir að hafa tekið undir þau.

Ég mælti þessi orð áðan sökum þess, að ég vissi ekki til og veit ekki til, að það þurfi að halda fund hér í hv. d. oftar á þessu þingi. En fari svo, þá er ekkert við því að segja, þá mun ég að sjálfsögðu boða fund í d., ef það telst nauðsynlegt. Segi ég svo fundi slitið.