13.05.1959
Efri deild: 122. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1981 í B-deild Alþingistíðinda. (2467)

Starfslok deilda

forseti (BSt):

Það er mál á ferðinni í hv. Nd., sem hugsanlegt er að komi hingað, en þá ekki nema til einnar umr. Það kann því að vera, að það verði boðaður nýr fundur í deildinni. En ef ekki verður af því, þá endurtek ég þær þakkir og óskir til hv. þdm., sem ég bar fram í gær, og bið þá um umboð einnig til að undirskrifa þær fundargerðir, sem hafa ekki verið undirskrifaðar enn.