12.05.1959
Sameinað þing: 49. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1813 í B-deild Alþingistíðinda. (2484)

Almennar stjórnmálaumræður

Forseti (JPálm):

Þessar umræður í kvöld, sem eru framhald frá í gærkvöld, fara fram á þá leið, að hver flokkur hefur til umráða 55 mínútur, sem skiptast í þrjár umferðir. Það eru tvisvar 20 mín. og að síðustu 15 mín. Röð flokkanna í kvöld er á þá leið, að fyrst er Framsfl., þá Sjálfstfl., síðan Alþfl. og síðast Alþb. Ég vil mega vænta þess, að hv. þm. haldi sig sem mest við tilskilinn ræðutíma. — Þá hefst umræðan, og tekur fyrst til máls fulltrúi Framsfl., hv. þm. S-Þ., Karl Kristjánsson.