14.04.1959
Efri deild: 101. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1194 í B-deild Alþingistíðinda. (2514)

118. mál, veitingasala, gistihúshald

Frsm. (Eggert Þorsteinsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins undirstrika það, að hv. 1. þm. N-M. tók mjög skýrt fram um þessa afstöðu sína í n. Og ég sem núverandi nm. í samgmn. skal flytja n. þessar óskir hans, ef svo fer, að hið fyrrnefnda frv., sem hann skírskotaði hér til, heldur áfram göngu sinni í gegnum þingið.