30.01.1959
Efri deild: 60. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í B-deild Alþingistíðinda. (256)

87. mál, niðurfærsla verðlags og launa o. fl.

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Þessari till. hefur nýlega verið útbýtt og mér hefur ekki gefizt tími til að gera á henni breyt. En vegna næstsíðustu málsgr. í gr., sem ákveður, að bætur skuli vera útsvars- og skattfrjálsar, get ég ekki verið með henni. Að öðru leyti er ég henni meðmæltur, en þess vegna neyðist ég til að segja nei.