30.01.1959
Efri deild: 61. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 458 í B-deild Alþingistíðinda. (264)

87. mál, niðurfærsla verðlags og launa o. fl.

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég hef mikið dálæti á kvenfólki og vil margt fyrir það gera. Þess vegna vil ég líka fylgja þeim eina kvenfulltrúa, sem er á Alþingi, og segi nei.