06.03.1959
Neðri deild: 88. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 462 í B-deild Alþingistíðinda. (286)

123. mál, kosningar til Alþingis

Frsm. (Gunnlaugur Þórðarson):

Herra forseti. N. hefur rætt frv. og er öll sammála um að mæla með því óbreyttu. Þegar við 1. umr. var gerð grein fyrir frv., og tel ég því ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um það, en legg til, að því verði hraðað gegnum deildina og vísað til 3. umr.