27.02.1959
Efri deild: 76. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 505 í B-deild Alþingistíðinda. (341)

103. mál, skattar og gjöld til sveitarsjóða

Jón Kjartansson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. — Það eru komnar fram tvær skriflegar brtt., mikilsverðar og ég tel alveg nauðsynlegt, að málinu verði frestað, svo að n. gefist kostur á að athuga þessar brtt. nánar. Ég vil vænta þess, herra forseti, að málinu verði frestað.