24.11.1958
Neðri deild: 27. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í B-deild Alþingistíðinda. (46)

4. mál, bifreiðaskattur o. fl.

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, felur í sér, ef samþykkt verður, framlengingu um eitt ár á gildandi ákvæðum um bifreiða- og benzínskatt. Fjhn. hefur athugað þetta frv., borið texta þess saman við texta gildandi l. og leggur til án ágreinings, að frv. verði samþykkt.