30.04.1959
Efri deild: 110. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 835 í B-deild Alþingistíðinda. (491)

138. mál, gjaldeyrissamningur Evrópu

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. 3. mál á dagskránni er um Gjaldeyrissamning Evrópu, frv. til l. frá hæstv. ríkisstj., sem varðar aðild Íslands að Gjaldeyrissamningi Evrópu. Fjhn. hefur athugað þetta mál samhliða því máli, sem afgreitt var hér næst á undan og er það niðurstaða n. að mæla með, að einnig þetta frv. verði samþykkt óbreytt.