27.04.1959
Efri deild: 108. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 886 í B-deild Alþingistíðinda. (583)
122. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Forseti (PZ):
Nú hagar þannig til, eins og hv. þm. er vitanlegt, að annars vegar standa skattanefndir úti um allt land óverkhæfar, af því að þessi lög eru ekki komin, hins vegar bíða margra þeirra ærin störf við vorannir, og þær vilja ljúka verkunum sem fyrst. Þess vegna má ekki dragast mjög lengi, að þetta mál verði afgreitt.
6. þm. Reykv. (GTh) lagði til, að umr. yrði frestað og málinu vísað til fjhn. Nú er formaður hennar veikur, en þm. S-Þ. (KK) hefur áður hlaupið í skarðið fyrir formann fjhn. og mætt á fundum, þegar hann hefur verið forfallaður og í von um, að hann geri svo enn og að n. hraði störfum, svo að hægt sé að taka málið fyrir mjög bráðlega aftur, vil ég bera upp till. um það, að málinu verði vísað til fjhn.