09.05.1959
Efri deild: 115. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 889 í B-deild Alþingistíðinda. (603)

122. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Það er kunnugt, að hv. fjhn. þessarar d. tók nú ekki alls fyrir löngu þetta mál til nýrrar meðferðar og átti m. a. í því sambandi viðtal við skattstjóra og jafnvel fleiri aðila. Síðan þessi athugun fór fram í n., höfum við ekkert heyrt frá n. um niðurstöðu þessarar athugunar. Ég vildi því mega mælast til þess, ef knýja á atkvgr. fram á þessum fundi, að einhver úr hv. fjhn. skýri okkur frá þeim niðurstöðum, sem þessi athugun leiddi til.