24.10.1958
Neðri deild: 9. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1003 í B-deild Alþingistíðinda. (703)

12. mál, útflutningur hrossa

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Ég fékk nú litlar upplýsingar í sambandi við það mál, sem ég var að gera athugasemd um hér. Ég skal hvorki tefja framgang þessa máls né umr. meira nú. Ég tel, að eftir atvikum geti þetta frv. gengið fram. En ég held, að það sé orðið tímabært, þó að það hafi, eins og fram kom, ekkert verið rætt enn þá innan þingsins, að málið í heild sé tekið til nokkru nánari athugunar en verið hefur, einmitt með hliðsjón af því, sem ég vakti athygli á í minni fyrri ræðu áðan.