22.12.1958
Efri deild: 42. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1010 í B-deild Alþingistíðinda. (727)

73. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði

Forseti (BSt):

Ég heyrði vel ósk hv. þm. áðan og ég geri ráð fyrir, að fundarhlé verði. Ég hafði í fyrstu hugsað mér að vísu að halda fund þegar að loknum þessum fundi, en af öðrum ástæðum getur það ekki orðið, og ég geri ráð fyrir, að nógur tími gefist fyrir fjhn. til að taka þetta mál til athugunar milli umr. En þar fyrir þarf ekki sérstaklega að vísa slíku máli til n., þar sem það er flutt af henni.