29.12.1958
Efri deild: 43. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1011 í B-deild Alþingistíðinda. (729)
73. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði
Björn Jónsson:
Herra forseti. Ég vil lýsa því yfir, að ég er algerlega ósammála hæstv. forseta um það, að ekki hefði verið unnt að afgreiða þetta mál fyrir jól, þrátt fyrir þessa brtt. Ég tel, að hún hafi, þegar hún var flutt, verið svo sjálfsögð, að auðvelt hefði verið að afgreiða hana ásamt með frv. á þeim degi, sem það var hér til 1. umr. Hins vegar hefur nú sú breyt. orðið á, að ríkisstj. hefur verið mynduð og hefur tekið á sig alla ábyrgð varðandi það mál, sem brtt. fjallar um. Lýsi ég því yfir, að brtt. á þskj. 145 er tekin aftur.