20.01.1959
Neðri deild: 59. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1018 í B-deild Alþingistíðinda. (794)
77. mál, bann gegn botnvörpuveiðum
Gísli Guðmundsson:
Herra forseti. Þetta frv., sem fyrir liggur á þskj. 153, er flutt af allshn. til staðfestingar á brbl., sem gefin voru út 1. sept. 1958, og stendur sú bráðabirgðalagaútgáfa í sambandi við hina nýju reglugerð um útfærslu fiskveiðilandhelginnar. Af hálfu nefndarinnar var ekki við 1. umr. sérstaklega gerð grein fyrir frv., þar sem um brbl. var að ræða, sem áður voru kunn. En nú milli umræðna hafa nefndinni borizt tilmæli frá sjútvmrn. um að flytja brtt. við frv. Sú brtt. er þess efnis, að ráðherra skuli vera heimilt samkv. till. fiskideildar atvinnudeildar háskólans og að fengnum meðmælum Fiskifélags Íslands að veita fiskirannsóknarskipum og vísindamönnum leyfi til að nota botnvörpu eða flotvörpu í rannsóknarskyni innan fiskveiðilandhelgi Íslands, enda sé leyfið tímabundið. Þessi breyting er tekin upp á þskj. 171, en jafnframt gerðar formsbreytingar á frv., sem eftir atvikum þótti eðlilegt að gera.
Um þetta atriði, sem ég nefndi áðan, um heimildina til þess að veita fiskirannsóknarskipum og vísindamönnum leyfi til þess að nota botnvörpu eða flotvörpu í rannsóknarskyni innan fiskveiðilandhelginnar, hefur nefndin rætt við forstöðumann fiskirannsókna í atvinnudeild háskólans og fiskimálastjóra. Þeir mæltu báðir með því, að þessi brtt. væri flutt, tóku fram, að þetta væri í samræmi við það, sem tíðkazt hefði á undanförnum árum, að vísindamönnum, bæði innlendum og erlendum, hefði verið leyft samkvæmt tillögum fiskideildarinnar að gera rannsóknir á þennan hátt innan þeirrar fiskveiðilandhelgi, sem þá var, og töldu eðlilegt og æskilegt, að þetta væri áfram leyft. Eftir að hafa fengið þessar upplýsingar taldi nefndin sjálfsagt að flytja þessa brtt., sem ég hef nú gert grein fyrir.