16.02.1959
Efri deild: 70. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1035 í B-deild Alþingistíðinda. (841)

106. mál, lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Forseti (BSt):

Fyrst kemur til atkvæða brtt. frá fjhn., sem ég lýsti áðan. Vilja menn heyra hana aftur?

„Við 1. gr. 1. málsgr. 2. málsl. orðist svo: Þegar svo stendur á, að sjóðfélagi verður sökum heilsubrests að láta af stöðu sinni, en tekur þá eða síðar við lægra launuðu starfi, má reikna eftirlaun hans af því starfinu, sem hærra var launað, enda hafi hann greitt iðgjöld samkvæmt því.“

Að sjálfsögðu verður miðað við hærra launaða starfið síðustu 10 árin samkv. þessu.