20.03.1959
Neðri deild: 97. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1111 í B-deild Alþingistíðinda. (923)
132. mál, bráðabirgðagreiðslur úr ríkissjóði
Utanr.- og fjmrh. (Guðmundur Í. Guðmundsson):
Herra forseti. Þegar ég á sínum tíma óskaði eftir því, að heimildin til bráðabirgðafjárgreiðslna úr ríkissjóði yrði framlengd til loka þessa mánaðar, þá var það í trausti þess, að fyrir þann tíma mundi afgreiðslu fjárlaga verða lokið. Nú hefur hins vegar komið í ljós, að undirbúningur og afgreiðsla málsins hefur reynzt miklu tímafrekari, en búizt var við í upphafi, þannig að vonlaust er, að hægt sé að ljúka málinu fyrir lok þessa mánaðar. Bráðabirgðauppgjöri á reikningum ríkissjóðs fyrir árið 1958 er nýlega lokið, og verður það afhent fjvn. nú í dag. Sömuleiðis hef ég gengið frá mínum till. í sambandi við tekjuáætlun ríkissjóðs fyrir 1959 til bráðabirgða, og munu þær till. einnig verða afhentar fjvn. um leið. Ég hef enn fremur fyrir nokkru óskað eftir því við hv. fjvn., að hún taki fyrir til afgreiðslu þau erindi, sem hjá n. liggja og útgjaldaliði fjárlaga. Að þessu vinnur hv. fjvn. nú, en því verki mun ekki vera lokið. En afgreiðslu eða undirbúningi afgreiðslu fjárlaga af ráðuneytisins hálfu er nú svo langt komið, að það á ekki að þurfa að taka langan tíma héðan í frá að ljúka málinu þannig, að fjárlagafrv. geti fljótlega eftir páskana komið til 2. umr. En engu að síður er óhjákvæmilegt að fá heimild til bráðabirgðagreiðslna úr ríkissjóði framlengda til loka næsta mánaðar. Þess vegna er þetta frv. hér fram borið, og vildi ég leyfa mér að óska eftir því, ef nokkur tök væru á, að frv. yrði afgreitt út úr d. í dag.
Ég leyfi mér því að leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr.