12.02.1959
Neðri deild: 75. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1118 í B-deild Alþingistíðinda. (939)

51. mál, skipun prestakalla

Frsm. (Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. Eins og hv. þm. A-Húnv. tók fram, er skammt síðan brtt. hans á þskj. 249 var útbýtt hér í d. Menntmn. hefur að sjálfsögðu ekki athugað efni hennar né leitað umsagnar biskups um till. En mér virðist efni till. vera þannig, að hér muni ekki um stórt ágreiningsefni vera að ræða. Ég vil því beina þeim tilmælum til flm. brtt., að hann taki hana aftur til 3. umr., en hægt sé að ljúka 2. umr. um frv. nú og atkvgr. Menntmn. mun þá athuga efni brtt. á milli umr., og gæti hún þá komið til úrslita hér í d. við 3. umr. málsins.