14.08.1959
Efri deild: 13. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 468 í B-deild Alþingistíðinda. (169)
4. mál, almannatryggingar
Finnbogi R. Valdimarsson:
Ég vil fagna þeim ummælum hæstv. félmrh., að allir þm. muni vera á því að fella niður þessi ranglátu ákvæði. En hví þá ekki að gera það? Hann getur sagt svo mikið, að hann telji víst, að allir hv. þm. séu á því að fella niður þessi ranglátu ákvæði. Hví þá ekki að gera það? Og hv. þm. Barð. segir, að hann hafi alltaf verið með því hér á þingi að fella niður þessi ákvæði. Ég er ekki viss um, að hans barátta í því efni hafi alltaf verið nógu skelegg. Ég er ekki viss um það, ef við lítum í þingtíðindin og rifjuðum upp afstöðu hans til þessara mála. Hitt viðurkenni ég, að hv. þm. Barð. hefur verið skilningsgóður á mörg ákvæði snertandi almannatryggingalög og átt ágætan þátt í lagfæringum á þeim, sem orðið hafa á síðustu árum, meðan hann átti hér sæti á þingi.
Hæstv. félmrh. segir, að ég hafi ekki hugmynd um, hve mikið það kosti Tryggingastofnun ríkisins að fella niður þessi ákvæði. Skyldi hæstv. félmrh. ekki hafa betri aðstöðu til þess en ég, að vita, hvað það mundi kosta? Hann er yfirmaður Tryggingastofnunar ríkisins. Þetta frv. hefur verið til meðferðar í hv. Nd. um langan tíma nú undanfarið. Hefur hæstv. félmrh. ekkert kynnt sér það hjá Tryggingastofnun ríkisins, hvað það muni kosta? Getur hann ekki upplýst hv. þd. um þetta? Ég get ekki upplýst það nákvæmlega, hvað það kosti og ég álít, að það sé erfitt að segja um það nákvæmlega, því að það er erfitt að segja um það á þessari stund, hve margt af gamla fólkinu verður að strita og vinna fulla vinnu til þess að geta dregið fram lífið og missir allan rétt til ellilífeyris. Það getur ekki lifað á honum einum, en missir réttinn, ef það vinnur fyrir sér. Ég veit ekki, hve margt af því hætti að vinna og reyndi að lifa á ellilífeyrinum, eins og hann er, og hygg ég, að Tryggingastofnun ríkisins gefi ekki vitað það heldur. En hæstv. félmrh. hefði verið nær en mér, sem hef ekki haft þetta mál til meðferðar hér í hv. þd. fyrr en í dag, að kynna sér, hvað þetta kostar, meðan málið var í meðferð Nd. Og hann ætti nú að gefa upplýst hv. þingdeild um það, hvað það kostaði. En það er auðséð, að þó að hann hafi fullyrt hér, að allir hv. þm. séu með því að fella niður þessi ákvæði, sem allir viðurkenna að séu ranglát og til skammar, þá eru ekki nógu margir í þessari hv. d., sem vilja láta það koma fram í verki, að það sé svo. Það er þegar ljóst.