07.08.1959
Neðri deild: 12. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í B-deild Alþingistíðinda. (309)

Löggæsla á Keflavíkurflugvelli

Dómsmrh. (Friðjón Skarphéðinsson):

Herra forseti. Ég get því miður ekki upplýst neitt um atvik þau, sem hv. fyrirspyrjandi fjallaði hér um, vegna þess að mér eru þau með öllu ókunn. Hins vegar mun ég að sjálfsögðu verða við þeirri beiðni hans að koma fsp. áleiðis til hæstv. utanrrh., sem með mál þetta hefur að gera, ef þær fregnir eru sannar, sem skýrt var frá í dagblaði í morgun.