14.08.1959
Efri deild: 13. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 576 í B-deild Alþingistíðinda. (330)

Starfslok deilda

Forseti (EggÞ):

Ég vil sérstaklega þakka hv. 1. þm. Eyf. fyrir hlý orð í minn garð og minnar fjölskyldu og ítreka árnaðaróskir mínar til þdm. allra og þá sér í lagi til þeirra, sem þegar eru ráðnir í að vera ekki í kjöri í næstu kosningum, — þakka þeim fyrir velunnin störf í þágu lands og þjóðar öll þau ár, sem þeir hafa setið hér á þingi og á ég þá ekki hvað sízt við þá yfirlýsingu, sem hv. 1. þm. N-M. gaf nú. Ég ítreka árnaðaróskir mínar til þm. allra og þakka þeim gott starf og þakka þeim fyrir að hafa tekið undir árnaðaróskir 1. þm. Eyf.