15.08.1959
Sameinað þing: 14. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 578 í B-deild Alþingistíðinda. (339)

Þinglausnir

Eysteinn Jónsson:

Ég vil leyfa mér í nafni okkar þingsystkina hæstv. forseta að þakka þær árnaðaróskir, sem hann hefur flutt okkur og okkar fólki. Þá vil ég enn fremur þakka hæstv. forseta fyrir góða stjórn á fundum sameinaðs Alþingis. Og ég vil loks flytja honum og hans fólki árnaðaróskir frá okkur þingsystkinum hans og biðja menn að taka undir þetta með því að rísa úr sætum. - [Þingmenn risu úr sætum.]