11.08.1959
Efri deild: 7. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 325 í B-deild Alþingistíðinda. (62)
1. mál, stjórnarskipunarlög
Forseti (EggÞ):
Ég vil eindregið beina því til hv. þm., að þeir haldi sér svo sem frekast er unnt við það mál, sem á dagskrá er. En því hefur nokkuð brugðið við, bæði í umr. hér í gær og aftur í dag, að frá því væri vikið og er illt að sjá, hver upphafinu veldur í þeim efnum. Ég vil eindregið mælast til þess, að þeir, sem eiga eftir að taka til máls, haldi sér eingöngu við dagskrármálið.