30.05.1960
Efri deild: 87. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2945 í B-deild Alþingistíðinda. (1121)

162. mál, verðlagsmál

Forseti (SÓÓ):

Það hefur komið fram ósk um, að þessu máli yrði frestað núna, til þess að hv. 5. þm. Norðurl. e. (BjörnJ) gæfist færi á að gefa út sérstakt nál. Ég vil verða við þessari ósk hv. þm., en óska sérstaklega eftir því, að nál. verði tilbúið það fljótt, að hægt verði að taka málið á dagskrá á morgun.