20.11.1959
Sameinað þing: 1. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í B-deild Alþingistíðinda. (14)

Rannsókn kjörbréfa

Frsm. 2. kjördeildar (Magnús Jónsson):

Herra forseti. 2. kjördeild fékk til meðferðar nú kjörbréf Jóhanns Hafsteins, en kjörbréf hans lá ekki fyrir hér í upphafi fundar, svo sem áður hefur verið skýrt frá. Kjörd. hefur athugað kjörbréfið, og hann hefur samkv. því verið kjörinn 5. þm. Reykv. Kjörbréfið er með lögformlegum hætti, og telur kjörd. ekkert við það að athuga og leggur til, að það verði tekið gilt.