20.11.1959
Sameinað þing: 1. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í B-deild Alþingistíðinda. (15)

Rannsókn kjörbréfa

Frsm. 3. kjördeildar (Friðjón Skarphéðinsson):

Herra forseti. 3. kjördeild hefur haft til athugunar kjörbréf hv. 5. þm. Vesturl., Benedikts Gröndals, sem nú hefur borizt. Hún leggur einróma til, að það verði tekið gilt.