02.06.1960
Efri deild: 92. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3290 í B-deild Alþingistíðinda. (1612)
153. mál, dragnótaveiðar í fiskveiðilandhelgi
Ásgeir Bjarnason:
Herra forseti. Nýlega höfum við Íslendingar stækkað fiskveiðilandhelgi okkar í 12 sjómílur. Þessi landhelgi hefur verið virt af öllum þjóðum nema Bretum. Margt bendir til þess, að stækkun landhelginnar hafi aukið fiskveiðistofninn og aflamagnið. Ég viðurkenni fúslega þörf sumra sjávarplássa fyrir dragnótaveiðar til að auka atvinnu og framleiðslu á vissum tímum árs. En hins vegar, eins og nú standa sakir að því er landhelgismál okkar varðar og þar sem stuttur tími er enn þá liðinn frá stækkun fiskveiðilandhelginnar, þá tel ég af þeim ástæðum varhugavert að leyfa nokkrar undanþágur af þessu tagi og segi því nei.