11.02.1960
Efri deild: 18. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3549 í B-deild Alþingistíðinda. (1724)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir ofl.
Alfreð Gíslason læknir:
Herra forseti. Hæstv. ríkisstj. er ámælisverð fyrir að gefa út þennan bækling sinn, aðallega og fyrst og fremst vegna þess, að útgáfa hvítrar bókar um efnahagsmál er ótímabær á þessu stigi. Tveir stjórnmálaflokkar, sem nú mynda ríkisstj., hafa lagt fram till. um lausn efnahagsmála og boðað fleiri till. um sama efni án þess að hafa lagt þær fram. Málið er enn til umr. hér á hinu háa Alþ., og þær umr. mega heita á byrjunarstigi. Enn þá er ekki séð, hver verður endanleg niðurstaða í þessu máli eða hver afgreiðsla Alþ. á því verður. Það má vænta brtt. við fram komnar till. hæstv. ríkisstj., og meira að segja eru komnar fram brtt. og það frá hv. stjórnarliðum. Allt þetta mál, lausn efnahagsvandans, er mjög viðkvæmt mál og umdeilanlegt mál, sem snertir hagsmuni allra stétta þjóðfélagsins. Að gefa út hvíta bók á þessu stigi málsins tel ég vera ámælisvert. Í þessari bók er túlkuð einhliða skoðun hæstv. ríkisstj. á málunum og það gert, eins og þegar hefur verið sýnt fram á í þessari umr., einhliða og með miklum áróðurskeim. Þetta ber að vita hæstv. ríkisstj. fyrir. Hitt er svo annað mál, að útgáfa hvítrar bókar um efnahagsmál getur vel átt rétt á sér, en útgáfan er ekki tímabær nú. Allt öðru máli hefði gegnt um, ef hæstv. ríkisstj. hefði gefið út sína hvítu bók um efnahagsmál að afgreiðslu hins háa Alþingis lokinni og nefnt þá t.d. bókina Viðreisn — ekki greinargerð um till. ríkisstj. í efnahagsmálum, heldur ráðstafanir í efnahagsmálum eða lög Alþingis um efnahagsmál.
Ég vildi láta þetta koma fram. Mér finnst þessi útgáfa sérstaklega forkastanleg fyrir það, á hvaða tíma hún kemur fram.