02.12.1959
Sameinað þing: 5. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3641 í B-deild Alþingistíðinda. (1801)
Varamenn taka þingsæti, rannsókn kjörbréfa
Frsm. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman á fund og athugað kjörbréf fyrir Jón Kjartansson forstjóra, 1. varaþm. Framsfl. í Norðurlandskjördæmi vestra. N. fann ekkert athugavert við kjörbréfið. Kjörbréfanefnd samþykkti því einróma að leggja til, að kosningin yrði tekin gild og kjörbréfið yrði samþ.