01.02.1960
Sameinað þing: 10. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3642 í B-deild Alþingistíðinda. (1811)

Varamenn taka þingsæti, rannsókn kjörbréfa

Forseti (FS):

Frá forseta Nd. hefur svofellt bréf borizt:

„Neðri deild, 1. febr. 1960. — Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf frá Birni Fr. Björnssyni, 4. þm. Sunnl.:

„Herra forseti. — Sakir veikinda mun ég ekki geta sótt fundi Alþingis á næstunni, og óska ég þess vegna, að varamaður minn verði hið fyrsta kvaddur til þingstarfa í minn stað.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fara fram í sameinuðu Alþingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Jóhann Hafstein, forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Með bréfi þessu fylgir kjörbréf varaþingmanns, Helga Bergs, og verður nú gert hlé á fundinum í 10 mínútur, meðan kjörbréfanefnd rannsakar kjörbréfið. — [Fundarhlé.]