16.03.1960
Sameinað þing: 24. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3647 í B-deild Alþingistíðinda. (1827)

Varamenn taka þingsæti, rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Einar Ingimundarson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Geirs Hallgrímssonar borgarstjóra, sem er 2. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjavíkurkjördæmi, en óskað hefur verið eftir því, að hann taki sæti á Alþ. í fjarveru hæstv. dómsmrh. Bjarna Benediktssonar. Nefndin hefur ekkert séð athugavert við kjörbréfið og leggur því einróma til, að kosning varaþingmannsins verði samþ. og kjörbréfið tekið gilt.