17.03.1960
Sameinað þing: 26. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3647 í B-deild Alþingistíðinda. (1829)

Varamenn taka þingsæti, rannsókn kjörbréfa

Forseti (FS):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt frá forseta Nd.:

„Reykjavík, 16. marz 1960. — Mér hefur í dag borizt svo hljóðandi bréf frá Lúðvík Jósefssyni, 4. þm. Austf.:

„Þar sem ég er á förum til útlanda og mun næstu vikur sitja ráðstefnu í Genf um réttarreglur á hafinu, leyfi ég mér hér með með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að fara þess á leit, að varamaður minn, Ásmundur Sigurðsson bankafulltrúi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu Alþingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Jóhann Hafstein, forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Með bréfi þessu fylgir kjörbréf, gefið út til handa Ásmundi Sigurðssyni fyrrv. alþm. sem varaþm. Alþb. af yfirkjörstjórn Austurlandskjördæmis.

Verður nú gert hlé á fundinum í nokkrar mínútur, meðan kjörbréfanefnd rannsakar kjörbréfið. — [Fundarhlé.]