25.04.1960
Sameinað þing: 42. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3651 í B-deild Alþingistíðinda. (1846)

Varamenn taka þingsæti, rannsókn kjörbréfa

Forseti (FS):

Svo hljóðandi bréf hefur mér borizt frá forseta Nd.:

„Alþingi, 23. apríl 1960. — Mér hefur í dag borizt svo hljóðandi bréf frá Halldóri E. Sigurðssyni, 3. þm. Vesturl.:

„Þar sem mér er nauðsynlegt vegna aðkallandi starfa heima fyrir að fara af þingi næstu vikur, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess, að varamaður minn, Daníel Ágústínusson bæjarstjóri á Akranesi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu Alþingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Jóhann Hafstein, forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Með bréfi þessu fylgir kjörbréf, gefið út af yfirkjörstjórn Vesturlandskjördæmis til handa varaþm., Daníel Ágústínussyni. Fundarhlé verður nokkrar mín., meðan kjörbréfanefnd rannsakar kjörbréfið. — [Fundarhlé.]